|
|
28.02.2007 16:05:00 / ingagumma
Já þau undur og stórmerki gerðust að lukkan hitti mig. -
Sorglegt nokk að amma Baldurs dó, blessuð sé minning
hennar. En við erum að koma í höfuðstaðinn og líklega
Verakvergi líka. Norðurlandið verður að bíða þolinmótt um óákveðinn
tíma nema eitthvað undarlegt gerist. Margrét föðursystir Baldurs
splæsir á liðið og erum við því mjög hamingjusöm og hlökkum mikið
til.....
»
18.02.2007 17:53:19 / ingagumma
Dagurinn í dag byrjaði með miklum ágætum; vaknaði, pissaði og
sofnaði síðan aftur zzz...
Síðan fór ég í bakaríið, sem er orðin venja hjá okkur Baldri á
sunnudagsmorgnum. Þar var ég minnt á að í dag er fastelavn, sem útskírði bankið sem ég hafði vaknað við í seinna
skiptið og reyndist vera barna hópur að slá köttinn úr tunnunni út
í bakgarðinum. Bakaríin voru sem sagt full af bollum, ekki
bolludagsbollum heldur fastelavnsbollum...

Perseus dræber Medusa 1876,
hugget 1903
Marmor, H. 187 cm
Eftir egg og beikon og bakkelsi úr bakaríinu fórum við niður í
bæ, því við höfðum lofað hvort öðru að fara á Ny Carlsberg Glyptotek í dag. Glyptotekið er
risastórt skúlptúr safn með gripi hvaðanæva úr heiminum. Egypsk,
grísk og rómverk meistaraverk meðal annarra. Þvílík upplifun, og
við eigum eftir að fara þangað aftur til að skoða betur og fara á
efri hæðin því harðidiskurinn var bara orðinn ofhlaðinn og fæturnir
lúnir eins og gerist oft á söfnum.
Já en aðalfréttin er náttúrulega
kaup mín á reiðhjóli. Nú á ég sem sagt þetta líka ljóta, gula,
frábæra, Mustang hjól. Ég er nefnilega búin að hanga á netinu í
þónokkurn tíma að skoða og spekúlera í hjólum og reið síðan á vaðið
fimmtudaginn var og festi kaup á gripnum, 300 danskurkall, takk
fyrir. Eitthvað var drengurinn flóttalegur sem tók við aurnum en ég
borgaði þó allavega fyrir gripinn en stal honum ekki sjálf og
hjólið auglýst á Den blaa avis - ég vona það besta því ekki vil ég
vera einn af þeim sem svarar framboði á þýfi...

Kiddi vinur, sveitungi og
fyrrverandi kollegi kom og heiðraði okkur með nærveru sinni á
föstudagskvöldið. Hann hafði verið á námskeiði, menningar og
skemmtiferð á vegum Kennó hér í borg, en var á leið heim. Eftir
gott spall og notalegheit og vísu nokkra bjóra, lagðist ég til
hvílu og vaknaði síðan full orku of snemma, miðað við að geta sofið
út. Istegade fékk því að nóta nærveru minnar um daginn meðan ég
þrammaði frá hverri concept búðinni til annarrar og lét mig dreyma
þar til ég var komin of nærri varasamari hluta götunnar og fékk mér
því listugt kebab og hjólaði heim.
Í gærkvöldi ætlaði ég að fara á
þorrablót Íslendingafélagsins en það fór ekki betur en svo að við
vorum næstum (aðeins ýkt) lögð af stað, en þá álpaðist ég til að
athuga hvenær það væri og það er víst ekki fyrr en um næstu helgi.
Við erum því að fara á þorrablót um næstu helgi en fórum ekki í
gær. Því veit ég ekki neitt hvað við erum að fara útí, vona að það
veri ekki bara gamlir ofurölvi íslendingar, þó svo meirihlutinn sé
nú þannig á svona venjulegu þorrablóti 
Ég er annars byrjuð að mála og
teikna til þess að undirbúa skólaumsóknir, sem gæti verið fréttir
fyrir einhverja. Því þó svo ég hafi mikinn áhuga, vilja og löngun,
hefur framtakssemi ekki verið mín sterkasta hlið.
Pósturinn losaði sig fljótt og vel
við Baldur, eða líklega öfugt. EN ég læt enn bjóða mér þessa
þrælavinnu, ja líklega vegna þess að ég hef ekki verið þekkt fyrir
framtakssemi.... Annars legg ég til að þeir sem vilja fá fréttir af
okkur, lesi heldur bloggið hans Baldurs því hann virðist enn vera
háður nýjabruminu af bloggskrifum en ekki ég....
Líklega einhver starfsglaður
vinnufélagi minn 
»
28.01.2007 17:34:35 / ingagumma
Jæja nú erum við búin að búa í Kaupmannahöfn í
rúman mánuð og margt gerst í okkar lífi, en samt ekki...
Okkur líður vel í íbúðinni og höfum þar með eignast heimil á ný,
en samt er það ekki alveg okkar, en samt godt nok. Við höfum
reynt að skoða okkur nokkuð um og kíkt á hin og þessi kaffihús hér
í nágrenninu og niður í bæ.
Þann 12. var okkur boðið út að borða með tveim föðursystrum
Baldurs og var líka par á aldur við okkur með, eða Hildur og
kærastinn hennar, en þau Baldur eru systkynabörn, þó ekki dóttir
föðursystranna sem buðu okkur. Það var mjög notalegt kvöld vel
útilátinn af mat og drikk á kostnað föðursystranna. Ekki
amalegt það!
Baldur fór svo í prófið og fékk út úr því viku seinna... ekki
sérstaklega uppörfandi bréf það. Í því stóð að hann gæti hringt og
fengið að vita hvers vegna hann ekki komst inn og var ástæðan ekki
léleg frammistaða á prófinu heldur elli og þjóðerni.... Svo
sá draumur er úti í bili.

Pabbi og mamma komu í heimsókn þann 17. og voru hjá okkur í
nokkra daga. Það var notalegt og gaman að fá að sjá framan í gömlu
og spássera með þeim um borgina. Kaffihús, pöbbar, listasöfn, út að
borða og búðarráp var mest yðkað þá daga, jú og slappað af
heima.
Ég byrjaði hjá póstinum daginn eftir að mamma og pabbi komu og
hef verið í læri hjá einum samstarfsmanni mínum. Flokka póst og
bera út í endalaust marga stigaganga er það sem ég er að fara gera
næstu mánuði. Ég byrja að vinna klukkan hálf sjö á morgnanna og
verð búin svona um kl. tvö á daginn þegar ég verð komin inn í
einhverja rútínu með þetta. Ekki svo slæmt að vera búin svona
snemma, en ég þarf að vinna annanhvern laugardag. Það finnst mér
ekki sérlega spennandi en læt mig nú samt hafa það.
Baldur byrjar svo hjá UNICEF á morgunn, en hefði bæði getað
fenið vinnu hjá pósinum og einhverju rafvirkjafyrirtæki en leyst
ekki nógu vel á. Rafvirkjavinnan einhverstaðar langt í rassgati og
svo er hann jú búinn að fá að vita að hann er orðinn gamall....
Þannig að hann ætlar að fara að betla niður á Striki, svipuð vinna
og Árni var í í fyrrasumar, vona að hann verði ekk
óléttur....

Mira bauð mér með sér og bekk sem hún er að kenna á
listasafnið og við fengum leiðsögn, það finnst mér alltaf gaman. Um
kvöldið fórum við svo heim til vinkonu hennar í mat og stelpu
snakk. Ákváðum meðal annars að reyna fynna vinnustofu saman þar sem
við gætum málað. Mira, Stefan og Bijou voru hjá okkur í mat á
föstudagskvöldið og var það mjög yndælt. Bijou var sérlega
góður gestur og át ekki blómin eins og ég var farin að kvíða fyrir
áður en hún kom (hundur).

Já lífið gengur nú en framtíðin er ferkar óráðin þessa stundina.
Ætla að sækja um nokkra listaskóla nú í vor, og ef ég verð heppin
þá er það framtíðin. Annars kannski listasaga í háskólanum... eða
hver veit? - allt svolítið óráðið...
»
07.01.2007 17:34:16 / ingagumma

Jólin voru okkur góð, þetta eru þau þrjú kerti
sem við þorðum að kveikja á á aðfangadagskvöld.
Við borðuðum andabringu og hamborgarhrygg og nú
megið þið geta hver broðaði hvað! Öll jólin slöppuðum við af,
borðuðum og horfðum á skjáinn. Það sem sár vantaði var rjúpan,
íslenskar bækur og mömmukökur annars vorum við nokkuð góð. Í góðu
sambandi við fjölskylduna og svo kom Lísa á miðvikudeginum í smá
heimsókn áður en hún hélt til Svíþjóðar þar sem hún fagnaði nýárinu
hjá Millu. Nýárinu fögnuðum við heima hjá Miru og Stefáni ásamt
þrettán öðrum, það var góð veisla með dýrindis mat og
fíniríi....
Færslan ber þess kannski merki að ég var búin að
semja "frábæran" pistil sem þurkaðist út af tæknilegum
ástæðum....
Er búin að setja inn myndir t.d. af íbúðinni og
fotomaraþonið sem til allrar lukku var inn á mp3 spilaranum hans
Baldurs...

Þetta er vinningsmyndin mín 
-
Baldur straujaði vísakortið sitt og erum við því
komin með tölvu okkur til mikillar ánægju.
-
Ég fer í atvinnuviðtal á morgun hjá Póstinu,
kannski kannski ekki nenni ég því en síðasta vika á leikskólanum
var ekki sérlega heilsusamleg þar sem ég var að vinna á deild þar
sem þrjú ný börn voru í aðlögun öll undir eins árs og hin á
deildinni ný...
-
Baldur er komin með mjög jákvætt svar um vinnu og
fer að hitta vinnuveitandan í næstu viku.
-
Hann fer líka í hið alræmda inntökupróf á
þriðjudaginn og plís krossið fingur fyrir hann.
-
Við erum flutt og líður mjög vel í íbúðinni sem
minnir mig á margan hátt á Bergþórugötuna hennar ömmu, ekki
slæmt.
-
Á föstudaginn ætla ég í kynnisferð um
myndlistarskóla með Miru og um kvöldið borðum við með föðursystur
Baldurs og frænku hans.
Hafið það gott...
»
24.12.2006 18:31:17 / ingagumma
Jæja sælir vinir.
Það mætti halda að ég hafi ekki verið búin að ná mér eftir
Frakklandsferðina, miðad vid hvad tad er langt sídan ég bloggadi
sídast. En jú ég var vel búin ad ná mér eftir hana og sídan flaug
tíminn bara frá mér og sídustu vikurnar í lýdháskólanum gufudu upp.

Medal tess sem ég hef verid ad dunda vid i skolanum sídustu
vikurnar.
- Hippakvøld (var ad vísu lasin
og fór snemma).
- Julefrokost med pakkaleik og fleskestæ.
- Opin sena tar sem ég tók tátt í leiklistarspuna og
teiknibardaga og Baldur spiladi frábærlega eins og venjulega.
- Tansaníu uppbod tad sem vid seldum málverk og gítarsóló og
keyptum medal annars risastóra spægipulsu.
- Galakvøld tar sem vid klæddum okkur upp og svoleidis. Svo var
svona útnefning af amerískum sid, tar sem var búid ad tilnefna og
sídan kjósa. Baldur var tilnefndur nátthrafn haustsins, vid bædi
drinker haustsins (ætli tad sé ekki raudvínsfløsku ad kenna) og svo
Íslendingur og par haustsins. Fengum par haustsins - já ekki
amalegt tad!

- Fyrsta mánudaginn í desember var jólapunt og lærdi ég t.d. ad
búa til rosaflottar jólastjørnur og fékk eplaskífur og jólagløgg.

- Búin ad fara á misflotta jasstónleika og eina frábæra
fønktónleika.
- Vid allir Íslendingarnir hældum saman morgensamling og ég hélt
líka einn elevmorgensamling ein um SEEDS sjálfbodalidana sem voru
hjá okkur í sumar á Kópaskeri, bádir gengu mjøg vel.
- Opid hús og alskyns síningar á málverkum og ødrum afurdum
kúrsanna í skólanum, tónleikar kórs og blús/jassbands og
leiklistarhópurinn sýndi.
- Tvøfaldur vinningshafi í ljósmyndamaratoni - bædi sem hópur
(ein í hóp) og besta myndin.
- Frábært lokakvøld tar sem vid bordudum gódan mat og skemmtum
hvort ødru nemendur og kennarar.
- Hrædileg kvedjustund á laugardeginum.

Já lýdháskóladvølin var alveg frábær og einstøk upplifun sem ég
mæli med fyrir alla, konur og kalla á øllum aldri. Uldum er
náttúrulega sá besti ad mínu mati, en audvitad fær madur góda
upplifun held ég í hvada skóla sem farid er í. Kennarar notid ykkur
KÍ og skellid ykkur í endurmenntun! Og allir sem dreyma um ad gera
eitthvad nýtt skulu gera tad. 
Tegar vid vorum búin ad kvedja og væta svolítid augun kom Mira
og sótti okkur á nýja fína bílnum sínum.. Á leidinni ákvádum vid ad
stoppa í Odinsvéum athuga med H. C. Andersen húsid og fengum okkur
tynkuborgara. En tad var dýrt stopp tví tegar vid komum aftur ad
bílnum var einhver grunsamlegur madur ad gera eitthvad grunsamlegt
milli síns bíls og Miru og tegar vid vorum búina ad átta okkur á
tví ad hann hafi brotist inn í bílinn var hann á bak og brott.
Fartølvan mín var horfin og tar med øll tónlistin hans
Baldurs og myndirnar okkar frá lýdháskólanum. Hann lét ekki
tar vid sitja heldur hafdi hann líka tekid gømlu Gengistøskuna mína
stútfulla af dóti sem hann hafdi ekkert med ad gera, íslenskar
bækur og ordabækur, einkunirnar mínar frá FB og háskólanum og
leyfisbréfid mitt frá menntamálarádherra og medmæli.
Myndlistardótid mitt penslar, málning og teikniblokkir, myndir sem
ég hafdi framkallad í foto t.d. jólagjafir til fjølskyldu Baldurs
t.e. myndir af honum og okkur. Og svo fullt af ýmsu dóti
rafmagnsmælir og verkfæri, vasareiknir, rafhlødur og hledslutæki.
En líklegast hafa dvd myndirnar og geisladiskarnir heillad tjófinn
sem voru efst í tøskunni ef hann hefur á annad bord opnad tøskuna
ádur en hann tók hana. Já vid komum ad honum sáum hann og bílinn,
en ekki númerid og líklega hefdi hann tæmt bílinn ef vid hefdum
ekki komid!
Lífid heldur áfam og vid skodudum íbúdina sem vid fáum 1. janúar
á mánudaginn. Urdum ekki fyrir vonbrigdum og hløkkum mikid til. Ég
fékk vinnu sem forfallamanneskja á leikskóla/vøggustofu á
tridjudaginn og hef unnid tví í fjóra daga tví húsid er stórt og
alltaf vantar einhvern. Vinnan er í Frederiksberg tar sem Mira og
Stefan búa og svolítid fá tar sem vid munum búa og tví leita ég enn
ad vinnu, líka vegna tess ad ef ég er lasin fæ ég ekki veikindadaga
borgada tví ég er forfalla... Baldur leitar og vonum vid ad hann
fái eitthvad sem fyrst. Systir Miru vinnur á leikskólanum tannig
fékk ég vidtalid svo fljótt og greidlega. Tad er frí milli jóla og
nýárs á leikskólanum... leita áfram.
Lísan okkar ætladi ad koma og vera hjá okkur um jólin og vorum
vid farin ad hlakka mikid til ad fá hana, en tid vitid øll miklu
betur hvernig vedrid hefur verid á Frónni undanfarna daga tannig ad
hún kemur fyrst eftir jól ef hún kemur...
Jæja er búin ad skreyta jólatréid, fórum í rómantíska ferd í
Tivoli í gær og keyptum raudvín á toppverdi í Magasin rétt fyrir
átta á seinustu stundu, já tad er ekki opid langt fammeftir hér í
Køben eins og á Skerinu á Torláksmessu - tví komumst vid
ad...
Ætla ad fara huga ad andabringunum mínum medan Baldur heldur
mømmujól med hamborgarhrygg. Vona ad Árni hafi mætt ferskur til
Gunnu Møggu í blúndurnar ádan eins og ég hef gert í fjøldamørg ár -
svo jólin geti komid í Drafnargøtuna
Heyri fá fjølskyldunni minni í kvøld á skype - frábær tækni! Í
tessum skrifudu ordum hringir skype-inn.
Gledileg jól hvar sem tid erud og hafid tad einstaklega
ánægjulegt og huggulegt! Ingibjørg og Baldur.
»
20.11.2006 12:23:44 / ingagumma
Já þó að netið sé komið inn á herbergi til okkar, þýðir það
greinilega ekki að ég verði duglegri að blogga. Mikið af tímanum á
netinu fer í að leita að samastað í Kaupmannahöfn... og eitthvað
allt annað...
En já við erum semsakt komin heim eftir mjög skemmtilegt
ferðalag til Frakklands, nánar tiltekið Strasbourg og nágrenni. Þar
var margt að sjá og skoða, sérstakega falleg borg sem hægt er að
mæla með. Héraðið sem hún stendur í Alsace hefur verið þýskt og
franskt til skiptis, en frá seinniheimstyrjöld franskt. Þannig að
margt minnir á Þýskaland, t.d. mörg nöfn og þ.h. Við gistum á
"ungdómshóteli" sem er líklega hótel fyrir ungt fólk, þó svo fólk á
öllum aldri væri þar. Ódýrt og sæmilega fínt... allavega
hótel...
Öll kvöldin fórum við Baldur ýmist ein, með hinum íslendingunum
eða hinum skólafélögunum á kaffihús. Drukkum dýrindis franskt öl...
og eitt kvöldið vengum við okkur vín og osta! – nema hvað...
Annars var líka lítið kaffe á hótelinu þar sem var oft byrjað
og/eða endað... maturinn á hótelinu var ekki neitt sérstakur,
frekar óspennandi ef eitthvað var.. en síðasta daginn brögðum við
Bladur Flame sem er eitthvað Alsace-special, komumst við að eftir
leit á netinu þegar við komum heim... Þunn pönnukaka-eitthvað með
beikon, lauk og sýrðum rjóma-líklega eldbakað.. mjög gott!
Dagarnir voru annars skipulagðir þ.e. á mánudaginn fórum við í
leiðsögutúr með leiðsögumanni um borgina. Það fannst mér og Baldir
mjög skemmtilegt, en það vour ekki allir sammála um það... ég meina
þó það væri ekki nema bara flissa pínu af enskukunnáttu greyið
konunnar Eftir hádegið sem við vörðum í miðbænum fórum við á
safn sem var ca. 45 mín. út fyrir bæinn. Þetta safn fjallaði um
sögu héraðsins sem hefur verið stormasöm vegna þess hversu oft það
hefur skipt um ríkisfang. Voða fínt safn þar sem við fengum svona
heyrnatól og heyrðum ýmsann fróðleik hér og þar um safnið.
Þriðudeginum vörðum við út á landi við vínsmökkun og
spássi-kraftgöngutúr. Mjög falleg þorp sem við heimsóttum og
líklega skemmtilegasti dagurinn á ferðalaginu. Fræddumst um vínrækt
og gerð og glöddum augun okkar og bragðlauka með því sem fyrirbar.
Sullið var ekki búið því á miðvikudags morgni fórum við í heimsókn
til Kronenbourg öl verksmiðjunnar sem var líka ævintýri fyrir augu
og bragðlauka....
Síðasti dagurinn var frjáls og þar sem við vorum búin að eyða
nóg af peningum sem eru ekki til, bæði í stórriverslunarmiðstöð,
götumarkaði og á vertshúsum um borgina, fórum við í langan göngutúr
og nutum þess að vera til... Eftri mjög vel heppnað ferðalag, en
lítinn svefn vegna áráttu til að vaka of lengi og hversu óþægilega
lítið pláss er í rútum fór helgin að mestu í svefn....
En nú erum við byrjuð aftur í skólanum og höfum fengið eitt nýtt
fag, í stað þæfingar og blúsbands erum við komin í dönsku –
langar nú samt mikið meira að syngja jólalögm með kórnum, en reyni
að vera skinsöm....
Fékk bréf frá Láru bestu og mynd af Búggí gamla... takk fyrir
það krúsýmín! Sem minnir mig á.... komnar nýjar myndir frá
Frakklandi...
»
02.11.2006 16:00:48 / ingagumma
Það er komin internettenging á herbergið okkar, eftir langa
bið!
Nú þarf ég ekkert að vera sósial meira Nei,
nei...
Áðan var verið að kynna fyrir okkur ferðalagið sem við erum að
fara í þarnæsta sunnudag... til Strasbourg!! ooooooooo.... mig
hlakkar svo til, hef aldrei komið til Frakklands áður. En fjórtán
tíma rútuferð er ekki mjög spennandi! Fáið fleira um það að frétta
seinna.
Svo erum við farin að reyna plana flutninga til
Kaupmannahafnar... Það gengur hægt hér frá Uldum... Það er víst
voða dýrt að leigja í Kaupmannahöfn og ekkert sérlega spennandi að
sækja um vinnu og íbúð í nokkur hundruð kílómetra fjarðlægð...Svo
ef þið þekkið einhverja sem vantar einhvern til að búa í íbúðinni
sinni í nokkra mánuði eða svo til að byrja með látið mig vita!
Love, inga
Ég vil taka það fram að auglýsingin um Basshunter er ekki að mínu
skapi.... né smekk...
»
01.11.2006 20:45:14 / ingagumma
Var ad lesa fréttirnar... jardskjálfti... fannst hann a
Skerinu?
Var ad skoda heimabankann minn... Hversvegna er reikningur fra
HA (Háskólanum á Akureyri) upp á 2500 kr. tar?????
Stundum er lífid bara svona madur skilur ekkert og mardur langar
vita meira...
Gerdi mer hufu og vetlingar i dagi i filtning... tad er kominn
vetur, fyrsti snjórinn kom i dag og misti af honum. Tannig fraus
sumar og vetur saman vonandi verdur vetruinn tannig ad ég turfi
ekki ad fa kraftgallan góda sendan  
Sá stuttmynd i morgensamling i morgun i tilefni halloween,
Winsent - teiknimynd upp a 5 min.... mjøg gód...
»
29.10.2006 18:28:18 / ingagumma
Jæja er skriðin upp úr ræsinu eftri mjög erfiðan, langan
morgunn... miklu veikari í dag en á föstudaginn!

Halloweenpartýið heppnaðist mjög vel, fékk meira segja Baldur
til að klæða sig upp , en það hefðu mátt vera fleiri sem
gerðu það...
Búin að setja fleiri myndir inn, látum þær tala sínu máli...
»
28.10.2006 10:06:50 / ingagumma
Í dag ætla ég að vera frísk... gærdeginum eyddi ég nefnilega í að
liggja í rúmminu og vera illt í augunum og mjöðmunum og og og vera
bara veik... ég var með þessa hræðilegu augnsýkingu  ofan í
mánaðarlegan líkamskvilla  Missti þar af leiðandi af skólanum
sem hefur alltaf reynst mér mjög erfitt, get líklega talið á hendi
annarrar handar þau skipti sem ég hef skrópað í skólann,
viljandi  Þegar ég var ellefu skrópaði ég nefnilega án þess að
vita af því  ... og þvílík sorg - og það í dönsku hjá Önnu kennara.
Fór bara heim einni kennslustund of snemma.. man nú ekki hvað beið
mín.. líklegast ekkert sérstakt líklega aðeins fyrstu merki um
hversu einstaklega utanvið mig ég get verið... Einn óveðursdag í
Reykjavík klæddi ég mig í Kraft gallann minn (sem var næstum í
tísku þá) lét um eyru þjóta athugasemdir Baldurs um að það yrði
líklega enginn skóli í dag og þrammaði niður á Lækjartorg til að
taka strætó upp í Breiðholt. Þorparanum að norðan fannst þetta nú
ekki vera neitt varhugavert verður  , en hefði átt að hlusta betur
á borgarbarnið og halda mig heima eins og flestir aðrir
skólafélagar mínir....    En toppurinn er líklega þegar
ég skrópaði óvart í efnafræðipróf í háskólanum...  Uppkast af
próftöflunni sagði mér annað en eiginleg próftafla gerði.. eða var
það bara ég sem leit skakt á hana...  Skildi ekkert þegar Mæja
bekkjarsystir mín sagði mér, þegar ég hringdi í hana til að verða
samferða upp í skóla, að hún hefði verið í prófinu um morguninn en
ekki eftir hádegi eins og ég ætlaði að gera!!!  Jæja nóg af
óförum mínum, í dag er ég frísk og ætla að skemmta mér vel í
Halloween partý í kvöld. Þarf að fara finna mér eitthvað
skemmtelegt til að klæðast svo ég geti fengið sem mest
gotterí...ekki! - tek myndir... Love inga
»
26.10.2006 18:11:23 / ingagumma
Jæja sælir félagar...
Það hefur eitthvað borið á því að ég sé ekki nógu dugleg að
blogga... getum við ekki bara sagt að það sé nóg að gera hjá mér og
því hafi ég ekki bloggað sem skildi... ekki það að ég sé að vísu
mjög léleg við það að setjast niður og skrifa nokkrar línur.
Það er nú margt sem við erum búin að hafa fyrir stafni undan
farið. Við hittum Petru vinkonu í Árósum fyrir nokkru. Hún bauð
okkur að koma og vera hjá sér og nýjum kærasta sem hún er búin að
næla sér í og kallar hana Beib í tíð og ótíma vegna tunguflóka við
það að segja Petra sómasamlega. Það var notalegt, Jan eins og mig
minnir að hann heiti bakaði hana okkur pitsu sem smakkaðist mjög
vel og svo drukkum við rauðvín og bjór frammeftir nóttu. Daginn
eftir röltum við um miðbæinn, ég og Baldur fórum á listasafnið
Aros, sem var mjög gaman, og að lokum borðuðum við saman á kaffi
húsi áður en við héldum heim til Uldum. Þar var ekki síður notalegt
því það var heimferðarhelgi og voru því ekki margir í skólanum, en
nógu margir til þess að hafa gaman (það þar nú ekki að vera
margir).
Svo fórum við hópferð í keilu til Horsens á
mánudeginum eftir, sem var mjög gaman.
Við brendum rakú úti allan þriðjudaginn, vorum heppinn með veður
og þetta var mjög skemmtilegt fyrir utna lyktina af fötunum
mínum eftir. Rakú er gömul japönsk tækni til að brenna glerung á
keramik. Helstu einkenni tækninnar er svarti liturinn sem leirinn
fær, og því á glerungurinn ekki að hylja allan hlutinn og síðan á
glerungurinn að springa aðeins og getur orðið fallega
málmlitaður.
Stefan og Mira heimsóttu okkur svo á miðvikudaginn fyrir rúmri
viku. Það var mjög gaman og notalegt Þau komu með okkur í tímana,
en það gera flestir gestir og þau voru svo heppin að hópurinn minn
úr keramik fór til Árósa á safn þar sem graubellemaðurinn er (það
er mjög vel varðveitt lík sem fannst í mýri). Þar var líka hægt að
finna ýmislegt gamalt víkinga dót s.s. rúna steina, stafkirkju,
keramik krúsir og fl. Síðan fengum við okkur að borða og skoðuðum
okkur um á stað sem heitir Bazar, það var ekki síður skemmtilegt.
Það er markaður sem innflitjendur, mest Tyrkir standa að þar sem má
fá ýmsan exotískan varninig og annan minna framandi á góðu
verði.
Helgin var ágæt, band á föstudaginn en heldur slappur
laugardagur... Á mánudaginn völdum við svo ný fög sem reyndist mér
hræðilega erfitt... Þetta skrifaði ég þann dag en beið með að
byrta...
Sælir kæru vinir.
Skrítið hvernig skapið getur
sveiflast hjá manni við hin minnstu tækifæri, það er virðist. Í dag
stóð ég frammi fyrir því að velja ný fög í skólanum. Já, mjög
spennandi, en hræðilega erfitt. Það að taka ákvörðun, um eitthvað
sem kemur eingum nema sjálfri mér við og á að gilda yfir x-tímabil,
hefur alltaf verið mér erfitt. Líklega eitthvað sem ég hef þróað
með mér og hefur ekki á allanhátt með það að gera að ég er vog
(stjörnumerkið).
Það að velja fög í skóla á ekki að
þurfa hafa þau áhrif á mann að maður finni sig knúinn til að borða
frá sér allt vit, verða þyrstan í alkahól eða þaðanað verra. Já ég
er hálf þugnlynd eftir þennan erfiða morgunn. Var ég að velja rétt,
átti ég að gera þetta öðruvísi eða á ég ekki að taka þetta svona
inn á mig, þetta eru jú aðeins átta vikur? Eru spurningar sem hafa
hringlað í höfðinu á mér í dag. Og já þegar allt er farið að
hringla þá kemur flóðið náttúrulega á eftir: Er ég á réttri leið?
Hvað skal ég næst? og sem verra er hef ég verið að gera rétt hingað
til, náttúrulega eitthvað sem ég fæ ekki breitt héðan
af.
En já ég valdi fög í dag. Ég á eftir
að verja tíma mínum í að þæfa útlenska ull (í staðin fyrir að læra
dönsku, læra vinna með ljósmyndir (í staðin fyrir að mála myndir),
halda áfram að leira (í staðin fyrir að vera í leiklist), dansa,
læra svolitla dönsku, læra um danska og erlenda rithöfunda (í
staðin fyrir að yoga áfram). En svo hættir þæfingin eftir fjórar
vikur og þá læri ég meiri dönsku, sem mér veitir nú ekkert
af.
Já þeir sem þekkja mig vel skilja
líklega hversu klofið höfuð mitt hefur verið í dag. Mikið hlakka ég
til þegar bróðir minn verður orðinn besti og virtasti sálfræðingur
á landinu og hjálpar mér með svona krísur...
Annars er haustið komið fyrir alvöru
hér í Danmörku og líklegasta skíringin á lundar fari mínu er að það
er haustlægð yfir landinu!
Lifið heil...
(sérstaklega á geði)
Já mjög ömuleg tilfinning en öll fögin reyndust vera vel valin,
þó að ég hafi nú ekki nent að dansa í morgun og mætt í staðin í
krop og kúltúr, sem ég er ekki alveg viss með.
Læt þetta nægja í bili, set kannski inn myndir við tækifæri þar
sem þessi nýji möguleiki virkaði ekki þegar ég ætlaði að fara
nota hann áðan (að setja myndir beint hér inn á
link) og skelli mér í leiklistaáhugahópinn sem er að byrja
núna....
»
11.10.2006 20:04:36 / ingagumma
Myndir segja svo mikið meira en orð að mínu mati....
Hver segir að maður geti ekki bloggað með myndum, það er nú mitt
sér svið, ekki!.. svo set ég jú myndatexta með.
Jú margt er búið að gerast síðan síðasta blogg og hef ég reynt
að vera dugleg með myndavélina til þess að leyfa ykkur, vinir
mínir,að skyggnast inn í líf mitt.
Ég átti notalegan afmælisdag þó engar voru gjafirnar,
en fékk ég 4x afmælissöng á íslenksu og dönsku og tvær
dásamlegar lagkager sem Anna og AK út bjuggu fyrir mig óvænt!
svo ekki sé talað um stelpu partýið um kvöldið!!!
Mig langar að minnast á hina frábæru síðu sem bróðir minn
elskulegi er búinn að setja á stofn, en þar sannar hann snilli sína
enn og aftur. Hann er frábærlistamaður orða og stíls.
Í dag kom maður og hélt fyrirlestur hjá okkur með yfirskriftinni
Við og þau, þurfum við að hræðast Islam. Þetta var virtur
fréttamaður sem hefur verið mikið í miðausturlöndum, en það var
mjög erfitt að skilja hann af mörgum ástæðum...
En það var léttara að skilja sjónvarps "fígúruna" sem kom á
mánudaginn og talaði um CF Zulu sem er fyrirmyndin af Nörda
fótboltaþættinum á Íslandi, já semsakt dönsk hugmynd. Það var bara
merkilega gaman...
Jæja læt þetta bara næja í bili. Baldur er farinn að monta sig
af dönsku kennitölunni sinni við hina Íslendingana þar sem við
vorum víst að tapa á móti Svíum í fótbolta, og Danir að vinna sinn
leik 
»
27.09.2006 16:57:57 / ingagumma
Jæja,
ýmislegt hefur gegnið á hér hjá okkur í Uldum Dk undarfarnar
vikur. Í morgun byrjðum við í fagi sem heitir beginerband og
erum við bæði komin í saxafónnám. Planið var nú að Baldur
lærði á píanó, en við mættum ekki í fyrsta tímann sem var á
mánudagsmorgun, þannig að hann mátti láta sér nægja eitthvað
blásturshljóðfæri, sem hann annars allra síst gat hugsað
sér... en unir vel við nú. Í bandinu erum við níu sem spilum
á saxafón!! sem er nú svolítið mikið, þrír á píanó/orgel,
tveir á gítar og einn á bassa og annar á trommur. Ég skipti
kannski yfir á klarinett þegar ég er búin að ná sæmilegum tón
á saxið, en kennarinn heldur því fram að það sé létt að læra
á saxafón (sem ég hef nú að vísu aldrei heyrt áður),
allavega léttara en að spila á
klarinettið.
En ástæða þess að við mættu ekki á
mánudagsmorgunn var sú að við vorum á leiðinni frá Kaupmannahöfn
“heim”, eftir að hafa búið hjá Miru og Stefan við gott yfirlæti um
helgina. Mira sem verður 27 ára á afmælisdaginn minn 3. október (já
rétt skilið, við erum fæddar sama mánaðardag ), hélt upp á afmæli
sitt á laugardagskvöldið og hægt er að sjá myndir af kræsingunum
sem hún bauð uppá. Ég var svolítið feimin í fyrstu , því þó ég
hafi hitt flesta af vinum hennar áður þekki ég þau ekki sérlega
vel, og var því aðeins of áköf í rauðvíninu (eins og kemur stundum
fyrir....) . Baldur var aftur eitthvað slappur og fór snemma í
rúmið og svaf vært í öllum hávaðanum og heimsóknunum inn í
herbergið.
Á laugardeginum versluðum við aðeins í
miðborginni og spókuðum okkur eins og vera ber , annars höfðum við
það bara huggulegt heima hjá Miru og Stefan og fengum að sofa í
rúmminu þeirra sem er þónokkuð notalegra en beddarnir okkar hér í
skólanum.
Í vikunni fyrir var ýmislegt brallað.
Það var baalaften á mánudag þar sem grilluð voru brauð á stöngum
við opinn eld (allir nema ég, því ég gat bara ekki látið þetta
hel... klísturdeig haldast á stönginn)og á fimmtudaginn
var sérlega skemmtilegt fellesfag. Okkur er skipt niður í
smágrúbbur í fellesfag og í þetta skiptið fékk hver grúbba lag,
texta og karókíútgáfu af laginu og átti að klæða sig upp og koma
fram. Myndavélin mín var akkúrat batteríslaus þarna þannig að ég á
aðeins myndir af einum hópnum, en líklega er hægt að nálgast
einhverstaðar myndir þar sem grúbban hans Baldurs er að
syngja Sommerlove úr Grise. Mjög skemmtilegt eftirmiðdegi
það!
Þarseinustu helgi var náttúrulega bara
drukkið svolítið stíft á barnum tvo daga í röð, farið í leiðangur
til Vejle og slappað af. Myndirnar eru týndar hér í tölvunni
þar sem þær voru settar inn um miðja nótt... Baldur
horfði á allar þrjár Godfather myndirnar upp í herbergi á
sunnudeginum, en þær fengum við á 150 dkr. í
Vejlefeðinni.
Læt þetta nægja í bili,
kv.ig
»
26.09.2006 21:09:41 / ingagumma
Sæl og bless....
Búin að vera vinna í að setja inn myndir og fleiri
tengla....
Endilega að kíkja á það... og kommenta!
Love Inga
»
13.09.2006 15:01:13 / ingagumma
Þá eru nokkrir búnir
að kommenta á síðasta blogg þannig að ég get skrifað annað

Það er ekki tekið út
með sældinni að spóka sig í rjómablíðu hvern dag... válegri gestir
eru á sveimi allt í kringum mann svo ekki verður sumum svefnsamt
nema glugginn hafi verðið vel vaktaður þessa litlu stund sem hann
fékk að vera opinn um daginn. Já Baldur er mjög hræddur við
geitunga og núna er mér ekkert sérlega vel við þá, eftir
misheppnaða morðtilraun á sunnudaginn... Já sérstakt pöddu hugrekki
mitt hefur hlotið hnekki, ég varð nefnilega fyrir því einstaka
óláin að verða fyrir oddi eins röndótts óvinar, sem neitaði að
gefast upp eftir að lifa af svæsinn handklæðisbardaga. Ó, hvað mig
verkjaði í vöðvann við þumalinn.
En það var allt í lagi
þó höndin bólgnaði smá og væri aum í nokkra daga því ég er búin að
smíða mér svo fínt fingurskart. Þið getið séð myndir af djásninu á
myndasíðunni: Fyrstu vikurnar í Dk ég er ekkert smá monntin af
baugnum.
Í allt annað... munið
þið ekki eftri að hafa séð Festen, Idjoderne, I Kina spiser de
hunde... og þessháttar danskar myndir? Í dönskum kúltúr höfum við
verið að tala um danskan húmor. Danskur húmor gengur mest út á
kaldhæðni. Okkur Íslendingunum er hún ekki svo framandi en ég verð
að fá aðeins að tala um Rússan okkar. Vá hvað það hlítur að vera
mikill menningar munur hér á milli. Rússinn okkar er nítján ára
stráka grei sem vatnsgreiðir hárið sitt aftur og dansar eins og
ballerína... fer úr að ofan ef einhver segir honum það með háði og
skilur ekki baun... er þó nokkuð góður í dönsku þar sem hann
stúderar hana í heimalandinu og eftir intressegrupe í rússnensku
skil ég alveg afhverju hann er svo sleipur í dönskunni ekki eldri
en hann er (hélt að vísu fyrst þegar ég heyrði hann tala að hann
væri að tala sænsku, danska með rússnenskum hreim). Já
intressegrupe átti náttúrulega að vera eitthvað spennandi og
skemmtilegt, en nei... rússnenska starfrófið átti að lærast í
fyrsta tíma, já takið eftir tíma, er ekki nóg að sitja laungum við
dönsku nám þó svo maður helli sér ekki af fullum krafti í
rússnensku líka. Stafrófið er allt annað en okkar og mikið erfiðara
að muna heldur en t.d. u=ú y=u í dönsku... Þrálátar
munnlegar æfingar og upplestur flókins texta... það vantaði bara
prikið til að berja á puttana á mér þegar ég fór með fleipur! Svona
var mér kennt þegar ég var að byrja í dönskunáminu, við lásum og
lásum texta sem við skildum ekki.... ég sem hélt að tungumálanám á
Íslandi væri á villigötum... nei, nei!! – þess má geta að ég hef
ekki lengur áhuga á rússnensku þannig að ég mætti ekki gær og mæti
ekki framar.
Á sunnudagskvöldið átti
ég indæla stund með fjölskyldunni í Duggugerðinu, við erum
nefnilega búin að downloda skype sem er bara snilldin ein. Mæli með
því við hvern sem er, mjög einfalt, ég gat meirasegja notað það...
Samtalið gekk mjög vel (fyrir utan að við sáum hvorki né heyrðum í
viðmælendunum, það kemur) þar sem ég og Baldur vorum með góða
munnræpu þar sem ég var búin að opna rósavínsflösku og Baldur var
auðvitað með einn kaldann í hendinni. Við sátum semsagt og töluðum
á fullu við tölvuna okkar og Lára skrifaði á móti... Ég leyfði mér
það að klára úr flöskunni þarna um kvöldið þar sem frí var um
morguninn því það var rejseweekend (löng helgi til að skreppa
heim). Baldur var þó ekki að drekka ódýrasta bjórinn á staðnum því
við urðum fyrir því óláni að missa af/misskilja þegar einn af
skólafélögum okkar fór niður yfir landamærin og keypti 55 kassa af
bjór, hægt er að fá þrjá kassa af sæmilegum bónusbjór í litlum
dósum á 100 dkr. (gengið er eitthvað í kringum12 kr.) En við látum
það nú ekki fara framhjá okkur næst.
Venlig
hilsen...
»
Síður: 1 2
|
|