Sådan går det...
13.09.2006 15:01:13 / ingagumma

Það geta ekki allir setið úti og bloggað...

Þá eru nokkrir búnir að kommenta á síðasta blogg þannig að ég get skrifað annað ;)

Það er ekki tekið út með sældinni að spóka sig í rjómablíðu hvern dag... válegri gestir eru á sveimi allt í kringum mann svo ekki verður sumum svefnsamt nema glugginn hafi verðið vel vaktaður þessa litlu stund sem hann fékk að vera opinn um daginn. Já Baldur er mjög hræddur við geitunga og núna er mér ekkert sérlega vel við þá, eftir misheppnaða morðtilraun á sunnudaginn... Já sérstakt pöddu hugrekki mitt hefur hlotið hnekki, ég varð nefnilega fyrir því einstaka óláin að verða fyrir oddi eins röndótts óvinar, sem neitaði að gefast upp eftir að lifa af svæsinn handklæðisbardaga. Ó, hvað mig verkjaði í vöðvann við þumalinn.

 

 



En það var allt í lagi þó höndin bólgnaði smá og væri aum í nokkra daga því ég er búin að smíða mér svo fínt fingurskart. Þið getið séð myndir af djásninu á myndasíðunni: Fyrstu vikurnar í Dk ;) ég er ekkert smá monntin af baugnum.

 

 



Í allt annað... munið þið ekki eftri að hafa séð Festen, Idjoderne, I Kina spiser de hunde... og þessháttar danskar myndir? Í dönskum kúltúr höfum við verið að tala um danskan húmor. Danskur húmor gengur mest út á kaldhæðni. Okkur Íslendingunum er hún ekki svo framandi en ég verð að fá aðeins að tala um Rússan okkar. Vá hvað það hlítur að vera mikill menningar munur hér á milli. Rússinn okkar er nítján ára stráka grei sem vatnsgreiðir hárið sitt aftur og dansar eins og ballerína... fer úr að ofan ef einhver segir honum það með háði og skilur ekki baun... er þó nokkuð góður í dönsku þar sem hann stúderar hana í heimalandinu og eftir intressegrupe í rússnensku skil ég alveg afhverju hann er svo sleipur í dönskunni ekki eldri en hann er (hélt að vísu fyrst þegar ég heyrði hann tala að hann væri að tala sænsku, danska með rússnenskum hreim). Já intressegrupe átti náttúrulega að vera eitthvað spennandi og skemmtilegt, en nei... rússnenska starfrófið átti að lærast í fyrsta tíma, já takið eftir tíma, er ekki nóg að sitja laungum við dönsku nám þó svo maður helli sér ekki af fullum krafti í rússnensku líka. Stafrófið er allt annað en okkar og mikið erfiðara að muna heldur en t.d. u=ú  y=u í dönsku... Þrálátar munnlegar æfingar og upplestur flókins texta... það vantaði bara prikið til að berja á puttana á mér þegar ég fór með fleipur! Svona var mér kennt þegar ég var að byrja í dönskunáminu, við lásum og lásum texta sem við skildum ekki.... ég sem hélt að tungumálanám á Íslandi væri á villigötum... nei, nei!! – þess má geta að ég hef ekki lengur áhuga á rússnensku þannig að ég mætti ekki gær og mæti ekki framar.

 

 



Á sunnudagskvöldið átti ég indæla stund með fjölskyldunni í Duggugerðinu, við erum nefnilega búin að downloda skype sem er bara snilldin ein. Mæli með því við hvern sem er, mjög einfalt, ég gat meirasegja notað það... Samtalið gekk mjög vel (fyrir utan að við sáum hvorki né heyrðum í viðmælendunum, það kemur) þar sem ég og Baldur vorum með góða munnræpu þar sem ég var búin að opna rósavínsflösku og Baldur var auðvitað með einn kaldann í hendinni. Við sátum semsagt og töluðum á fullu við tölvuna okkar og Lára skrifaði á móti... Ég leyfði mér það að klára úr flöskunni þarna um kvöldið þar sem frí var um morguninn því það var rejseweekend (löng helgi til að skreppa heim). Baldur var þó ekki að drekka ódýrasta bjórinn á staðnum því við urðum fyrir því óláni að missa af/misskilja þegar einn af skólafélögum okkar fór niður yfir landamærin og keypti 55 kassa af bjór, hægt er að fá þrjá kassa af sæmilegum bónusbjór í litlum dósum á 100 dkr. (gengið er eitthvað í kringum12 kr.) En við látum það nú ekki fara framhjá okkur næst.

 

Venlig hilsen...

Lára skrifaði
hæhæ ég sé að myndirnar eru komnar inn:) good job! hehe Við erum komin með webbara og hljóðnema þannig að við erum til í slaginn þegar þið hafið tíma til að blaðra;) bið að heilsa og knús :*
Milla skrifaði
Sakan þin.....nú er allt að gerast....hehehehe
petra skrifaði
Sæl Inga mín. Thid erud velkomin ALLTAF! símanr. mitt er 26907146, heyrumst og plønum!
Kristrún skrifaði
Þetta er hinn allra glæsilegasti gripur hjá þér,, til hamingju :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.